Fréttir 2024

Golfklúbbur Grindavíkur byggir nú um mundir nýtt æfingasvæði.

Golfklúbbur Grindavíkur byggir nú um mundir nýtt æfingasvæði sem hefur heldur tafist en hitt eins og gefur að skilja.

Helgi Dan, framkvæmdastjóri og allt muligt man hjá klúbbnum kom við hjá okkur í dag og þáði að gjöf 9 æfingamottur á nýja svæðið þeirra, við hjá HÁ Verslun erum hæst ánægð með þennan drifkraft á erfiðum tímum hjá klúbbnum og óskum þeim alls hins besta við allt það sem þeir taka sér fyrir hendur í allri sinni uppbyggingu til framtíðar.

PS: Möllerinn, eitt aðal fyrirtækjamót til styrktar golfklúbbnum verður haldið í lok Maí eins og undanfarin fjölda ára.
Við hjá HÁ Verslun mætum að sjálfsögðu þar með 2 lið og hvetjum öll fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.