HÁ Verslun ehf gaf á dögunum Björgunarsveitinni Ársæl, deild sem tilheyrir rústabjörgunarsveit, Husqvarna K4000 rafmagns steinsög.
Hlutir farnir að eldast hjá þessum snillingum og þurftu að endurnýja, alltaf gott að geta gefið af sér og eins og áður er betra að gefa en þiggja.
Mikki og Karl mættu og sóttu sögina með bros á vör. Við munum reyna að hjálpa til við að endurnýja þeirra tæki eins og kostur er.
Við þökkum þessum herramönnum fyrir heimsóknina og óskum sveitinni alls hins besta í öllum sínum aðgerðum sem við vonum auðvitað að verði sem allra fæstar.
Kv
Lára, Daði og Himmi.
